1. júlí...
…er í dag og sunnan strekkingur, sem hefði á árum áður þýtt það að talsverður fjöldi Eyjamanna hefði tekið strikið upp í fjöll og eyjar til lundaveiða og svona til þess að minnast míns gamla vinar, sem ekki er með okkur lengur, Hallgríms �?órðarsonar, þá renndi ég í morgun upp á flakkarann með sjónaukann og sá í raun og veru það sem ég bjóst við. Aðeins örfáir lundar á lofti. �?að var nokkuð ljóst strax í maí að framundan væri erfitt sumar hjá lundanum, enda hefur makríllinn aldrei verið jafn snemma á ferðinni, eða um miðjan maí voru menn farnir að verða varir við hann. Sú staðreynd, ásamt ýmsu öðru gerir það að verkum, að lundinn þarf að sækja æ lengra eftir æti og miðað við hvað lítið hefur sést af lunda að undanförnu, þá er þetta orðið það langt í ætið að augljóslega mun varpið að mestu leyti misfarast, sem þýðir að sumarið í sumar verður að öllum líkindum fimmta sumarið af síðustu sjö, þar sem varpið misferst algjörlega.
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær, að lundastofninn fyrir norðan land er í gríðarlegum vexti og hófust veiðar þar strax í morgun.
Varðandi hugsanlegar lundaveiðar í Eyjum, þá er eins og ég hef sagt svo oft áður mín tilfinning sú að veiðidögum mínum í Vestmannaeyjum sé lokið og í raun og veru, eins og útlitið er núna, þá finnst mér ansi hæpið að tala um einhverja veiðidaga núna í júlí mánuði, eða fyrir �?jóðhátíð eins og áður fyr tíðkaðist. Almennt heyrist mér veiðimenn vera á þessari skoðun, en mig langar þó að taka undir með Sigurgeiri í Álsey, en Sigurgeir var á þerri skoðun, eins og svo margir reyndir veiðimenn, að veiðidagarnir sl. sumar hefðu verið of snemma á tímabilinu og hann spáði því að mikið yrði af lunda eftir �?jóðhátíð, sem að gekk að mestu leyti eftir og hann er á þeirri skoðun núna, að leyfa eigi veiðar eingöngu eina helgi í ágúst t.d. helgina eftir �?jóðhátíð. Væri þetta gert þá væri hægt að nota þá helgi til þess að kanna og aldursgreina lundastofninn í Eyjum, og komast þannig að því í raun hvernig aldurhlutfallið á lundastofninum sé orðið í dag.
Eitt að lokum sem að mér þætti áhugavert að væri skoðað. Ef við reynum að horfa á breytingar á lundastofnum á heimsvísu, þá er ljóst að stofninn er hruninn að mestu leyti í Færeyjum og Noregi, en á móti kemur að þá er mér sagt að lundastofninn fari stækkandi á Bretlandseyjum og Skotlandi og maður veltir því fyrir sér, að ef stærsta ástæðan sé makríllinn og hann sé búinn að færa sig það mikið norður á bóginn að hann sé hættur að hafa þessi slæmu áhrif á því svæði. �?etta þyrfti að sjálfsögðu að skoða betur, en vonandi nær lundastofninn sér á skrið aftur á næstu árum.

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.