18 ára með amfetamín
Frekar rólegt var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í síðustu viku. �?ó voru nokkur verkefni sem þurfti að sinna um síðustu helgi vegna ölvunar og óláta á skemmtistöðum bæjarins. Engar kærur liggja þó fyrir vegna þessara mála.
Tilkynnt var um tvö eignaspjöll til lögreglunnar í þessari viku. Brotin var rúða í snyrtistofu Ágústu við Hilmisgötu og er ekki vitað hver var hér að verki en þeir sem geta veitt upplýsingar beðnir að koma þeim til lögreglunnar. �?á var tilkynnt um að börn hafi brotið rúðu í bílskúr og er vitað hverjir voru þar að verki. Foreldrar þeirra voru upplýstir um málið.
Eitt fíkniefnmál kom upp í vikunni en lítisháttar af amfetamíni fannst á 18 ára gömlum manni þar sem hann var á veitingahúsi í bænum. Hann viðurkenndi að eiga efnið og sagði það til eigin nota.
Fimm umferðarlagabrot voru kærð í vikunni. �?rjú fyrir að leggja ólöglega. Einn ökumaður var kærður fyrir að nota ekki öryggisbelti. �?á var faðir kærður fyrir að fela 8 ára syni sínum stjórn á sexhjóli.
Lögreglan vill benda ökumönnum á að skafa snjó af rúðum og ljósum ökutækja áður en lagt er af stað en brot á þessu varðar sektum.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.