Myndaleg fyrstu skref mótvægisaðgerða

Fyrstu skrefin í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar eru tekin af myndug skap.  Ég tel að ríkisstjórn hafi með þeim markað ákveðna stefnu og á von á því að innan skamms verði næstu skref stigin.  Hvað varðar sértækar aðgerðir til styrktar Vestmannaeyjum þá bera þar hæst 20 milljóna styrkur til rannsókna- og fræðasetursins, framlag til eflingar framhaldsskólans og tvö störf hjá Nýsköpunarstofu Íslands. Þá koma áframhaldandi samningar við Flugfélag Íslands til með að styrkja ferðþjónustu hér í Eyjum og þá ekki síst það að bæta 3. ferðinni við yfir sumartímann.  Hinsvegar er öllum ljóst að fleiri sértækar aðgerðir verða að koma til ef á einhvern hátt á að bæta þau skörð er sett voru í skjöld okkar Eyjamanna með því að skerða hér efnahag um 3.6 milljarða á ári. Um leið og ég hrósa stjórnvöldum fyrir fyrstu skrefin þá myndi ég vilja að ríkisstjórn Íslands taki fastar á vanda sjávarútvegsins td. með því að fella veiðigjald alveg niður auk þess sem enn hefur ekkert verið minnst á breytingar á þeim misrétti sem felst í byggðarkvóta.  Þá þarf að stórefla þorskrannsóknir og tilboð Vestmannaeyjabæjar og atvinnulífsins hér um að leiða það starf og greiða að hluta stendur enn.  Ég trúi ekki öðru en að stjórnvöld þiggi þá útréttu hönd.   Ég hef í aðdraganda þessara ákvarðana verið í góðu samstarfi við Árna Matthisen og Össur Skaprhéðinsson auk flestra þingmanna sunnlendinga.  Slíkt samstarf er forsenda árangurs og við leggjum mikið upp úr áframhaldandi samstarfi og viljum áfram leiða starf varðandi þær mótvægisaðgerðir er snúa að Vestmannaeyjum.  Það sem nú hefur verið tilkynnt er sem sagt gott skref í rétta átt en skjöldurinn er enn skörðóttur og því ætlum við að breyta.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.