Sveitarfélagið styrkir Sesseljuhús um hálfa milljón

Fjórtán nemendur hafa nú hafið háskólanám á Sólheimum í Grímsnesi undir yfirskriftinni „Sjálfbær þróun í sjálfbæru samfélagi”. Námsbrautin er unnin í samstarfi Sesseljuhúss, umhverfisseturs á Sólheimum og bandarísku menntasamtakanna CELL. Fyrsta skólasetningin fór fram sl. föstudag og ávarpaði Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, samkomuna. (meira…)

Ákærður fyrir ólöglegar kvikmyndasýningar

Eigandi veitingastaðarins Kaffi Kró í Vestmannaeyjum hefur verið lögsóttur fyrir að sýna gestum veitingastaðarins í nokkur skipti mynd Heiðars Marteinssonar „Uppbyggingin – Eldgosið í Heimaey” sumarið 2004.Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa sýnt myndina „The Heimaey eruption, Iceland 1973″ eftir Alan V. Morgan á Krónni í nokkur skipti á árinu 2005. Maðurinn er […]

Myndaleg fyrstu skref mótvægisaðgerða

Fyrstu skrefin í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnar eru tekin af myndug skap.  Ég tel að ríkisstjórn hafi með þeim markað ákveðna stefnu og á von á því að innan skamms verði næstu skref stigin.  Hvað varðar sértækar aðgerðir til styrktar Vestmannaeyjum þá bera þar hæst 20 milljóna styrkur til rannsókna- og fræðasetursins, framlag til eflingar framhaldsskólans og […]

Byggja á nýtt útivistarsvæði við Íþróttamiðstöðina

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á morgun verður lögð fram tillaga um að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja nýtt útivistarsvæði við íþróttamiðstöð með það fyrir augum að hægt verði að taka slíka aðstöðu í gagnið 1. júní árið vorið 2008. (meira…)

3 stór mál tekinn fyrir á morgun

Á bæjarstjórnarfundi á morgun verða tekinn fyrir 3 mjög stór mál fyrir Vestmannaeyjar og þau innihalda meðal annars; nýtt útivistarsvæði, knattspyrnuhús og lækkun á leiksskólargjöldum. Hægt er að lesa tillögurnar í heild sinni hér að neðan.1. Mál Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja nýtt útivistarsvæði við íþróttamiðstöð […]

Reisa á knattspyrnuhús sem verður tilbúið á næsta ári

„Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfis og framkvæmdasviði að leita hagkvæmustu leiða til að byggja knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum með það fyrir augum að það verði tekið í gagnið árið 2008,“ segir í tillögu sem lögð verður fyrir fund bæjarstjórnar Vestmannaeyja á morgun. Er það bæjarstjórn í heild sem stendur að tillögunni. (meira…)

Ekki líklegt að komi til fjöldaatvinnuleysis á næstu mánuðum

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, segir, að samtals verði varið 10,5 milljörðum króna til mótvægisaðgerða á næstu tveimur fiskveiðiárum vegna niðurskurðar þorskkvóta. Ekki eru í þessari tölu framlög til vísindaverkefna. 6,5 milljarðar eru nýtt fjármagn en rúmir 4 miljarðar eru flýting á framkvæmdum. Árni sagði að það væri mat ríkisstjórnarinnar, eftir að hafa ráðfært sig við […]

Hamarsvegur lokaður að hluta

Mikið vatnsveður gengur nú yfir eyjarnar en Veðurstofan varaði við mikilli úrkomu á sunnanverðu landinu í dag. Heiðar Hinriksson, lögreglumaður sagði að búið væri að loka hluta af Hamarsvegi á móts við Þórsvöllinn vegna vatnselgs þar sem niðurföll hafi ekki undan. (meira…)

FR�?TTIR á föstudögum til áskrifenda á fastalandinu

Áskrifendum Frétta á meginlandinu, hefur fram að þessu verið sent blaðið með flugi á fimmtudagsmorgnum. Það hefur þó verið undir því komið að hægt væri að fljúga til Eyja. Nú hefur orðið sú breyting, að framvegis verða Fréttir sendar með Herjólfi hvern fimmtudagsmorgun. Blaðið verður því komið í Póstmiðstöðina í Reykjavík uppúr hádeginu á fimmtudögum, […]

Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar kynntar í dag

Fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra, menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra hafa boðað til blaðamannafundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag kl. 16.00. Þar verða kynntar tillögur ríkisstjórnarinnar að mótvægisaðgerðum vegna niðurskurðar þorskkvóta. (meira…)

Auglýsir eftir umsóknum um styrki

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands auglýsir hér á vefnum, eftir umsóknum um styrki til atvinnu­þróunar á starfssvæði sínu. Umsækjendur geta verið fyrirtæki, félög, stofnanir og einstaklingar með rekstur á Suðurlandi. Til ráðstöfunar, að þessu sinni, eru 5,0 mkr. (meira…)

Stoppuðu þyrlupall milljarðamærings

Þetta er allt saman hrokkið í réttan gír þannig að menn fara að settum lögum og reglum,” segir Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, um það er skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu kom í gær í veg fyrir steypuvinnu við þyrlupall hjá frístundahúsi milljarðamæringsins Magnúsar Kristinssonar.Magnús, sem er útgerðarmaður og eigandi Toyota-umboðsins með meiru, á sem kunnugt er […]

Stungusending inn í framtíðina

Created by PhotoWatermark Professional

Eftir því sem umræða um knattspyrnuhús í Vestmannaeyjum hefur dregist á langinn, og framkvæmdir í þá veru sömuleiðis, hef ég gert mér betur og betur í hugarlund áhrif þess að gera ekki neitt til lengri tíma.   En það yljar mér meira og mér finnst mun skemmtilegra að velta fyrir mér, hvað ef menn nú bara […]

Aðalfundur Eyverja

Aðalfundur Eyverja verður haldinn miðvikudaginn 26. september 2007 kl. 20 í Ásgarði. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1.     Skýrsla stjórnar 2.     Reikningar lagðir fram 3.     Lagabreytingar 4.     Kosning til stjórnar og annarra trúnaðarstarfa 5.     Önnur mál Stjórn Eyverja (meira…)

Alltaf jafn gott að koma til Eyja

www.eyjar.net mun á næstu vikum og mánuðum heyra í brottfluttum eyjamönnum bæði innanlands sem og erlendis með þeim tilgangi að fá að vita hvar þau eru stödd í lífinu og hvaða viðhorft þau hafa til Vestmannaeyja. Í dag eru það Siggi Vídó og Berglind Ómarsdóttir Nöfn ?Sigurgeir Þorbjarnarson ( Siggi Vídó)Berglind Ómarsdóttir Fjölskylduhagir ?Gift með […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.