Jæja góðir hálsar þá er getraunastarfið hafið og fór fyrsta vika í hópaleik haustsins fram um helgina og var árangur þokkalegur. Eftir fyrstu vikuna þykir liðið Pint of Foster's líklegast til að standa uppi sem sigurvegari, en það er en langt og strangt getraunahaust framundan og því getur ýmiselgt gerst. Spilaðar verða 12 vikur og mega menn þurrka út 2 verstu vikurnar, svona til að halda haus segja þeir er þessu stjórna. Menn geta þess vegna en skráð sig til leiks en missi þá bara út eina röð og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig til leiks. Þátttökugjald er kr. 5.000. Stefnt er á að hafa opið næst komandi föstudag bæði fyrir leik ÍBV og Fjölnis og eins í hálfleik, en svo opnar að sjálfsögðu klukkan 10 á laugardagsmorgunin og þá geta menn komið og hlustað á viskubrunninn Örn Hilmis valta yfir hvern þann sem ekki segir að Arsenal sé yfirburðalið.
og svo þetta:
Leikurinn verður að flestu leiti með hefðbundnu sniði, en eftir miklar vangaveltur höfum við
ákveðið að hafa leikinn í 12 vikur (líkur 8.des 2007) og telja 10 bestu vikurnar, þannig að
þó að eitthvað klikki hjá typpurum þá geta þeir huggað sig við að geta hent út tveimur lökum vikum.
Vinningar verða eftirfarandi:
1.sæti 40% af innkomu hópaleiksins
2.sæti 25% af innkomu hópaleiksins
3.sæti 15% af innkomu hópaleiksins
Stöðuna verður svo að finna undir linknum fótbolti á forsíðu og svo þar undir er annar hnappur er á stendur Getraunir 900
Hægt er að sjá stöðuna á ibv.is
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.