Horfði á húsið sitt brenna

„Þetta var mjög mikill eldur og ég held það sé allt ónýtt fyrir ofan mig,” segir Aðalheiður I Sveinsdóttir Waage sem býr fyrir neðan íbúðina að Hilmisgötu 1 í Vestmannaeyjum þar sem eldur kom upp síðdegis í gær. Aðalheiður sem er heimavinnandi húsmóðir var heima þegar eldurinn kom upp, sat inni í eldhúsi og var að drekka kaffi.

„Það var fólk hjá mér í heimsókn þegar við uppgötvuðum reyk. Þá hlupum við fram og okkur tjáð að kviknað hefði í. Síðan stóðum við hinum megin við götuna og horfðum á, þetta var mjög mikið,” segir Aðalheiður en þetta var um fjögurleytið í gær.

Kona á fertugsaldri, sem býr fyrir ofan Aðalheiði, er í haldi lögregl grunuð um íkveikju. „Ég þekki þetta fólk ekki mikið en þetta er ógæfufólk því miður. Ég veit ekkert hvort hún hefur kveikt í en það hefur stundum verið ónæði af þeim,” segir Aðalheiður en hún hefur nokkrum sinnum þurft að hringja á lögreglu vegna ónæðis um helgar.

Aðalheiður er fædd á Eyrarbakka en hefur búið alla tíð í Vestmannaeyjum og tvö ár að Hilmisgötu. Íbúð Aðalheiðar slapp ótrúlega vel úr brunanum. „Það eru örlitlar vatnsskemmdir á íbúðinni minni en við erum með svo gott slökkvilið sem stóð sig vel.”

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.