Hluthafar vilja afskráninguna

Vinnslustöðin fer úr Kauphöllinni samkvæmt ákvörðun hluthafafundar. Næststærsti hluhafinn biður Kauphöllina að hafna eða fresta afkráningu.

„Umboð stjórnarinnar er nú ljóst,” segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar og forsvarsmaður Eyjamanna ehf., sem á rétt rúm 50 prósent í Vinnslustöðinni. Hluthafafundur samþykkti á miðvikudag að farið yrði fram á afskráningu félagsins úr Kauphöll Íslands.
Boðað var til fundarins að beiðni Kauphallar Íslands vegna mótmæla næststærsta hluthafans við afskráningu félagsins. Í september hafði stjórn Vinnslustöðvarinnar þegar samþykkt afskráningu. Lögmaður fór með ríflega 32 prósenta atkvæði Stillu, sem er í eigu Guðmundar og Hjálmars Kristjánssonar.

Sáralítil viðskipti hafa verið með bréf Vinnslustöðvarinnar í Kauphöllinni. Síðast gengu bréf félagsins kaupum og sölum 22. ágúst. Óvirk verðmyndun og tilkostnaður við að halda úti skráningu eru meðal raka sem stjórn Vinnslustöðvarinnar hefur fært með afskráningu. „Næst er að skrifa Kauphöllinni aftur og óska eftir afskráningu,” segir Sigurgeir Brynjar og gerir ráð fyrir þeim bréfaskriftum í næstu viku að afloknum stjórnarfundi. „Svo veit maður ekki hvað þeir gera,” segir hann, en Kauphöllinni er heimilt er að fresta afskráningunni í eitt ár.

„Ég ræði ekki einstakar fjárfestingar sjóðsins við utanaðkomandi,” sagði Torfi Sigtryggsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja og sleit samtali. Sjóðurinn, sem á 5,34 prósent í Vinnslustöðinni, sat hjá við atkvæðagreiðslu miðvikudagsins.

Samkvæmt samþykktum lífeyrissjóðsins má hann ekki eiga í óskráðum félögum nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í sumar ákvað sjóðurinn að selja ekki hlut sinn. Eyjamenn buðu 4,6 krónur á hlut og Stilla 8,5 krónur. Miðað við boð Stillu var hlutur lífeyrissjóðsins 707 milljóna króna virði. Guðrún Erlingsdóttir, stjórnarformaður Lífeyrisjóðs Vestmannaeyja, segir tímann munu leiða í ljós hvort ákvörðunin um að selja ekki hafi verið rétt eða röng. Hún segir sjóðinn halda sínum hlut og að eignir hans í óskráðum bréfum fari ekki yfir sett mörk þótt Vinnslustöðin verði afskráð. „Við höfum trú á því að Vinnslustöðin haldi áfram að vaxa og þessi bréf verði alveg seljanleg. Þá kom fram á fundinum að Vinnslustöðin færi ekki illa með þá sem staðið hafa við bakið á fyrirtækinu og kynnu að vilja selja síðar. Þá yrði fengið óháð fyrirtæki til að meta verðmæti og sanngjarnt söluverð fundið,” segir Guðrún.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.