Verðandi sjómaður í frönsku sjónvarpi
Fyrir um ári síðan sagði Anna �?lafsdóttir frá því að fjölskylda hennar hefði fengið heimsókn frá þýskum rithöfundi og þau væru komin í þýska barnabók. Nú er annað ævintýri að klárast.
Anna segir frá ævintýrinu á facebook síðu sinni sem lesa má hér að neðan
Fyrir um mánuði hringdi í mig frönsk sjónvarpskona, spurði reyndar um Harald Hannesson og ég svaraði frekar hryssingslega að hann væri á sjó ( hélt þetta væri einhver svindlari) en róaðist þegar hún nefndi að Elliði Vignisson hefði bent á hann. Hún var semsagt að gera sjónvarpsþátt um krakka víða um heim sem eiga sér einhvern draum eða hafa sérstaka hæfileika. Hún vildi hafa Hannes í þessum þætti þar sem hann er ákveðinn í því að verða sjómaður þegar hann verður eldri. Og nú um helgina hafa tveir franskir sjónvarpsmenn fylgt honum eftir. �?að er búið að ganga á Eldfellið, leika sér í fjörunni, skoða lunda, fara í golf, spila á gítar, skoða fiskmarkaðinn og Kapina og svo var endað á því í kvöld að mynda kvöldverð hjá fjölskyldunni og ég fékk að elda steiktan fisk fyrir franskt sjónvarp smile emoticon . �?eir eru hæstánægðir með Hannes og allt sem þeir hafa séð hér. �?etta er búið að vera mikið ævintýri og jafnframt alveg þræl mikil vinna. Nú bíðum við bara eftir að Hollywood hringi næst

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.