Föstudag og laugardag fer fram Ultimate Frisbee mót í Herjólfshöllinni í Vestmannaeyjum. Þátttakendur eru 65 frá 22 löndum, aðallega frá meginlandi Evrópu. Er þetta í þriðja sinn sem Hanna, aðalskipuleggjandi mótsins hefur haldið mót hér á landi, fyrst í Hafnarfirði 2012, síðast í Hveragerði 2019 og loks nú í Vestmannaeyjum. Raunar hafa verið haldin mót hér í Eyjum í tvígang áður sem hluti af dagskrá Goslokahátíðar. Eru þetta einu mótin sem vitað er til að haldin hafi verið hér á landi.
Ultimate Frisbee, sem er gífurlega vinsæl íþrótt meðal háskólafólks bæði austan og vestanhafs, er í stuttu máli spilað á velli sem líkist þeim sem amerískur fótbolti er spilaður á, með endasvæðum, sem leikmenn verða að grípa diskinn inni í til að skora stig. En að öðru leiti með reglum sem helst líkjast körfuboltareglum, svo sem með „pivot foot“, stjörnuskrefum, snertingalausum leik o.þ.h..
Eins og áður segir fer mótið fram föstudag og laugardag í Herjólfshöllinni milli kl. 11-18. Öllum er frjálst að kíkja í höllina og sjá hvernig þessi áhugaverði leikur er spilaður og eftir að leik lýkur báða daga, gefst áhorfendum kostur á að læra meira um leikinn og fá handleiðslu um leikreglur og tækni; og jafnvel spila æfingaleik ef áhugi er fyrir hendi.
Auk Hönnu koma að skipulagningu mótsins unnusti hennar Marcus Öhmann og Eyjamennirnir Bjarki Þór Hammer Sigvarðsson og Sigurjón Viðarsson.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.