67 milljarða gjaldþrot Smáeyjar
Engar voru til upp á tæplega 67 milljarða króna kröfur í þrotabú félagsins Smáey. Félagið var í eigu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum og var mjög umsvifamikið á árunum fyrir hrun.
Félagið var m.a. móðurfélag Bergeyjar eignarhaldsfélags sem átti Toyota-umboðið, innflutningsfyrirtækið Gísla Jónsson og Yamaha á Íslandi. Bergey var sömuleiðis í ábyrgð vegna annarra félaga í eigu Magnúsar. �?ar á meðal voru Bílaleiga Flugleiða, M. Kristinsson, Sólning í Kópavogi, TMH á Íslandi, Motormax og Pizza Pizza (móðurfélag Dominos á Íslandi). �?á var Smáey móðurfélag félagsins Suðurey sem átti 43% hlut í fjárfestingarfélaginu Gnúpi. Á meðal annarra eigna félagsins voru 85% hlutur í útgerðinni Bergur-Huginn, Egilsdalur ehf og fleiri félögum.
Fórnarlamb markaðsmisnotkunar
Félagið Smáey var úrskurðað gjaldþrota í héraðsdómi Suðurlands í október í fyrra. Fram kemur í Lögbirtingablaðinu í dag að skiptum á þrotabúinu lauk 12. maí síðastliðinn. Í kjölfar gjaldþrotsins í fyrra var skipt um nafn á Smáey og heitir þrotabúið Vetrarmýri í dag.
Magnús kom illa út úr hruninu efnahagslífsins haustið 2008 en útgerð hans var í fyrra seld Síldarvinnslunni upp í skuldir gagnvart gamla Landsbankanum. Í kjölfar sölunnar sagðist Magnús hafa verið fórnarlamb markaðsmisnotkunar stjórnenda gamla Landsbankans.
(Viðskiptablaðið greindi frá)

Nýjustu fréttir

Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.