Mikil umsvif hjá Hampiðjunni í Vestmannaeyjum
19. september, 2024
Ölfugur hópur í Vestmannaeyjum, Jón Garðar, Siggi Sveins, Óskar Pétur, Inga Magg, Ingi Freyr og Biggi Gauja. Efst er Birgir Bjarni.

Ingi Freyr – Einn víðförlasti netagerðarmaður Íslands

„Hampiðjan er í dag stærsti framleiðandi veiðarfæra í heimi með starfsemi á 76 stöðum í 21 landi og með um 2000 starfsmenn. Höfuðstöðvarnar eru við Skarfabakka í Sundahöfn en þar eru aðalskrifstofurnar, netaverkstæði og aðallager fyrirtækisins á Íslandi. Hjarta framleiðslunnar á vörum fyrirtækisins er Hampidjan Baltic í Litháen, þar sem framleiddir eru þræðir, hnýtt net og fléttaðir ofurkaðlar ásamt framleiðslu á fullbúnum veiðarfærum. Frá 2013 hefur Hampiðjan rúmlega sexfaldast í stærð, frá því að velta 50 milljónum evra í  322 milljónir á síðasta ár. Vöxturinn hefur verið góð blanda af sterkum innri vexti og stofnun og kaupum á félögum í veiðarfæra- og fiskeldisþjónustu,“ segir Ingi Freyr Ágústsson sem stýrir starfsstöð Hampiðjunnar í Vestmannaeyjum sem byggir á gömlum grunni.

„Stofnendur félagsins fyrir réttum 90 árum hefur sjálfsagt aldrei órað fyrir því að litla fyrirtækið þeirra sem barðist oft í bökkum fyrstu áratugina, yrði að stærsta veiðarfærafyrirtæki heims með starfsemi allt frá Dutch Harbor í Alaska í vestri til Timaru á Suðurey Nýja Sjálands í austri,“ bætir Ingi Freyr við og passar hann vel inn í þessa mynd. Hefur starfað sem netagerðarmaður víða um heim.

„Við erum um 100 starfsmennirnir á Íslandi og héðan er samsteypunni stjórnað en félög sem hafa verið keypt er flestum stjórnað af fyrri eigendum. Er það besta leiðin til að halda þeim gangandi.“

Ingi Freyr hefur unnið víða um heim sem netagerðarmaður.

Víða tyllt niður fæti

Ingi Freyr hefur starfað lengi í netagerð og komið víða við. „Í janúar á þessu ári voru liðin 34 ár síðan ég byrjaði hjá Netagerð Ingólfs, seinna Ísfelli og svo hjá Hampiðjunni. Þaðan lá leiðin til Seaflower í Namibíu í Afríku. Næst til Fleur De Mer í Marokkó svo til Hampiðjunnar í Litháen svo Tornet á Kanaríeyjum og þaðan til Sea Harvest í Suður Afríku.Fór einn 84 daga túr á verksmiðjutogara í Kyrrahafinu að veiða makríl og endaði sá túr á makríl veiðum við Færeyjar eftir 30 daga siglingu úr Kyrrahafinu.

Tók svo einn 64 daga túr á verksmiðjutogara í Máritaníu. Þannig að maður hefur prófað ýmislegt,“ segir netagerðarmaðurinn víðförli. „Í allt voru þetta  tæp 20 ár sem ég var erlendis og hingað er ég kominn, Eyjamaðurinn. Kunni þessu vel en eftir þetta sumar finnst manni flest betra en Ísland,“ segir Ingi Freyr og hlær.

Fjölbreytt þjónusta

Í Vestmannaeyjum eru sex í fullu starfi og einn í hálfu sem þjónusta öll sjávarútvegsfyrirtækin í Eyjum. Eru veiðarfærin stærsti hlutinn en sala á vörum og búnaði er vaxandi hluti starfseminnar. „Við seljum alla járnavöru sem skipin þurfa, lása, tóg, garn og net og allskonar fatnað og hreinsiefni sem þarf til sjós. Í frystihúsin seljum við hanska, svuntur, hárnet og aðra einnota vöru. Fimm til sex tegundir af stígvélum, gúmmígalla, vettlinga, aðgerðarvesti fyrir sjómenn og kuldagalla svo það helst sé nefnt. Ef það er ekki til hjá okkur getum við reddað því á tveimur dögum.“

Ingi Freyr segir að þessi þáttur starfseminnar hafi eflst með auknum umsvifum dótturfyrirtækis Hampiðjunnar, Voot ehf. Voot sem heyrir nú undir Hampiðjuna hefur byggt upp sterka markaðsstöðu í útgerðar- og rekstrarvörum ásamt því að þróa sjóvinnufatalínuna MarWear og því sem fyrirtækið var upphaflega stofnað til,  að útvega beitu til línuveiðiskipa. „Nú er þetta einfaldara og auðveldar okkur að þjónusta viðskiptavinina sem fjölgar með hverjum deginum. Þeir eru með allar sápur og olíur sem við erum ekki með hér. En við getum reddað öllu sem fiskiskip og vinnsla þarfnast með mjög skömmum fyrirvara.“

Von um loðnuvertíð

Hampiðjan í Vestmannaeyjum byggir á traustum grunni og sér að mestu um uppsjávarflota Eyjamanna. „Eigum markaðinn nánast alveg,“ segir Ingi Freyr. „Öll skipin eru með troll frá okkur en einhverjir með Vonartroll frá Færeyjum sem er í eigu Hampiðjunnar. Sjáum líka um viðgerðir og viðhald á loðnunótum skipa Vinnslustöðvarinnar.

Það var ansi mikið högg þegar ekki var gefinn út loðnukvóti síðasta vetur og þar af leiðandi engin loðnuvertíð. Við höfum haldið út fullri starfsemi síðustu ár og fínt að gera þetta árið. Við höldum starfsfólkinu með von um að það verði loðnuvertíð. Það er hægt að senda verkefni milli starfsstöðva en við eigum mikið undir loðnunni.“

Lítil endurnýjum

Ekki er hægt að segja að ungt fólk sæki í netagerðarnám en tveir eru á samningi hjá Hampiðjunni í Eyjum. „Veit um tvo uppi á landi. Það hefur verið aukning hjá fyrirtækjum í fiskeldi fyrir austan. Vilja hafa fagmenn til staðar þegar gera þarf við net í kvíunum. Stéttin er ekki alveg að deyja út, en ekki langt frá því. Við erum fjórir lærðir hjá okkur og einn hjá Ísfelli, tveir hjá Berg-Huginn og þrír hjá Vinnslustöðinni. Samtals tíu og af þeim eru sjö 65 ára og eldri. Því stutt í að það verði bara þrír eftir,“ segir Ingi Freyr að lokum.

Myndir Óskar Pétur.

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 3 Tbl 25
3. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Vsv Logo Blue Vsv
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst