Tvær dagskrár framundan um helgina í Safnahúsinu

Þrátt fyrir að vetur konungur sé nú á hátindi veldis síns viljum við í Safnahúsinu halda ótrauð áfram með sýningar og dagskrár. Mikið verður því um að vera um komandi helgi.

Handverkssýning á laugardaginn 3. febrúar kl. 16:00 í Einarsstofu

Fjöldi hagleiksmanna og –kvenna er að finna hér í Vestmannaeyjum. Fyrir fáeinum árum auglýstum við í samstarfi við Listvini Safnahúss eftir listaverkum kvenna sem þær væru tilbúnar til að sýna í Einarsstofu. Ætlunin var að safna saman verkum 100 kvenna í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna árið 2015. Skemmst er frá því að segja að 117 konur úr Eyjum lánuðu verk sín á sýninguna sem var ótrúlega áhrifarík innsýn í þá miklu listagrósku sem hér ríkir.

Nú er röðin komin að körlum en þar er þó annar háttur hafður á. Aðeins þrír hagleiksmenn voru beðnir um að sýna að þessu sinni og hugmyndin er að halda slíkum sýningum áfram með þátttöku karla og kvenna, barna og annarra kynja. Að þessu sinni draga eftirfarandi völundar fram dýrgripi sína: Kristján Egilsson (Kiddi á Náttúrugripasafninu), Kristmann Kristmannsson (Kristmann múrari) og Sigurður Óskarsson (Siggi á Hvassó).

Sýning þeirra opnar laugardaginn 3. febrúar kl. 16:00 og stendur fram til 19. febrúar eða konudags.

 

Heilsudagur á sunnudaginn 4. febrúar kl. 13 á bryggjusvæðinu í Sagnheimum

Eitt af því sem einkennir Vestmannaeyjar er ríkuleg íþróttamenning. Vestmannaeyjabær er íþróttabær. Heilsuefling er lykillinn að eflingu íþróttaárangurs. En heilsuefling er einnig lykill að langlífi og bættu lífi. Ótrúlega mikið framboð er í Eyjum af margskonar tækifærum til heilsueflingar. Náttúran sjálf opnar faðm sinn með einu fegursta umhverfi sem býðst,  félög og félagahópar eru hér til um nánast allar tegundir íþrótta og heilsueflingar, fyrirtæki bjóða upp á fjölbreyttar æfingar með nýjustu tækjum og Vestmannaeyjar eru þátttakendur í verkefnum sem miða að því að efla og bæta líf og heilsu eldri borgara. Við viljum kynna fyrir ykkur sem mest af því sem er í boði í Eyjum með heilsueflingardeginum undir merkinu og takmarkinu Að verða besta útgáfan af sjálfum sér.

Dagskráin hefst á sunnudaginn 4. febrúar kl. 13.00 með stuttum fyrirlestrum nokkurra valinnkunnra einstaklinga sem þekkja á eigin skinni hvað það er sem þarf að gera til að verða eigin besta útgáfa og að því loknu sýna sumir þeirra sem bjóða upp á ólíkar leiðir að bættu lífi  af hverju þú ættir að koma og taka þátt í starfinu. Til að gefa þér sem mætir á sunnudaginn enn betra tækifæri til vaxtar og grósku munu fyrirtæki og félög í heilsurækt í Eyjum opna dyr sínar í næstu viku svo þú getir kannað hvort þar sé ekki einmitt sú áskorun og þau tækifæri sem geta gert þig að bestu útgáfunni af sjálfum þér eða sjálfri þér.

Í tilefni af Heilsueflingardeginum í Safnahúsinu á sunnudaginn býður Lionshreyfingin í Vestmannaeyjum upp á blóðsykursmælingu milli kl. 14:30 og 16:30.
Upplagt tækifæri til að koma og taka stöðumat á heilsunni. Hjúkrunarfræðingur á staðnum með góð ráð og leiðbeiningar í framhaldi af mælingum.

Við hvetjum ykkur öll til að koma í Safnahúsið um helgina til að sjá glæsilegt handverk heimamanna sem og til að upplifa töfrana við það að ákveða að verða eigin besta útgáfa.

 

Nýjustu fréttir

Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  
Ráðið segir tafir sýna mikilvægi betri undirbúnings
Opnunarhátíð Sea Life – myndasyrpa
Ísfélagið á vörusýningu á Englandi
Perlað fyrir von og samstöðu í Höllinni í dag
ÍBV sigraði Stjörnuna í Eyjum
Könnun sýnir breytt fylgi flokka í Eyjum
Ræddu kvartanir og þjónustu við fulltrúa Terra

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.