Í kvöld, klukkan 21:00 mætir lið Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum liði Menntaskólans í Kópavogi í keppninni Gettu Betur á Rás 2. Útsending hefst klukkan 20:00 en um erfiða viðureign er að ræða fyrir Eyjamenn enda varð MK í öðru sæti í keppninni í fyrra. Um er að ræða fyrstu umferð keppninnar en tvær umferðir fara fram í útvarpi áður en keppnin færist yfir í sjónvarpssal.