Vantar fleiri stundir - fleiri mínútur

Ýmsir sérfræðingar reyna að sjá fyrir sér afleiðingarnar af hraðanum hjá nútíma fjölskyldum og hvaða áhrif hin starfsframakrefjandi menning og tímaleysi margra foreldra geti haft á fjölskyldulífið og þá sérstaklega á  börnin.  Nýlega hvatti forseti Íslands til fleiri samverustunda foreldra og barna og er það vel en það getur verið erfitt fyrir börnin að skilja vangaveltur um tímann og að í gamla daga hafi fábreytileiki einkennt líf fólks.  Nú er nefnilega fjölbreytileiki lífsins svo mikill að sumir hafa það eitt að markmiði að einfalda líf sitt og gera minna af öllu.  Herdís Egilsdóttir  lýsti því  í viðtali að henni finndist að erillinn í dag væri eins og að renna sér á svellbungu á sleipum skóm og geta ekki stjórnað neinu.  Ja, hvað gerir maður ekki til að vera maður með mönnum þegar við höfum hreinlega gert tímaleysi og streitu að mælitæki um virðingu. Þegar  það er nánast dygð að vera mjög upptekinn og lifa í stöðugu tímaleysi í kapphlaupi um einskis verða hluti. Alls konar sérfræðingar, heilbrigðisstéttir og verkalýðsfélög halda svo námskeið um streitu og streitutengda vanlíðan sem talin er hafa mikil  áhrif á samskipti fólks og á vinnuafköstin. Margir reyna þannig að afrugla okkur í þessari villu og rétta okkur áttavita en við heyrum ekki né sjáum á harðahlaupum í vitlausa átt. Það er eins og við höfum gersamlega misst sjónar af því sem skiptir máli og gerir okkur og börnum okkar gott.

Einhverjir færa rök fyrir því að menn séu á stanslausum flótta í vinnu og asa til að draga athyglina frá því hvað þeir eru þreyttir. Ætlum við svo að hvíla okkur um jólin eða gefa hvíld í jólagjöf?

Er það raunsönn mynd sem dregin er upp í auglýsingunni frá VR þar sem foreldrarnir hafa vinnuna með sér að matborðinu, í rúmið eða detta dauðþreyttir fram á jólaborðið?.  Erum við að keyra okkur út? Þurfum við kannski að endurnýja vökulögin?

Eplalykt á jólum

Amma viltu segja okkur sögur frá því þú varst lítil segja börnin og sem betur fer eru börnum sagðar sögur og það er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að koma í veg fyrir kynslóðabil eða að

við glutrum niður þjóðararfinum í hraða nútímans. Þegar krakkar leita eftir sögum hjá fullorðna fólkinu leitar hugurinn gjarnan til þeirra eigin æsku og stundum byrjar sagan hjá ömmu:  Í gamla daga þegar ég var barn…. vorum við krakkarnir að….. Þá voru líka  samverustundir fjölskyldunnar nánast heilagar t.d. matar og svefntími og heimilisbragur allur annar en er í dag. Menn áttu fáa hluti sem þeir þurftu að hafa mikið fyrir að eignast, gæta vel og kannski laga og endurbæta með tímanum.  Á móti kemur neysluhyggja nútímans þar sem margt er einnota og er fljótt að koma og fara. Þar sem eitthvað nýtt tekur við og hinu er hent.  Börnum sem hlusta á sögur hjá ömmu og afa  í dag finnst einkennilegt að eplalykt geti verið tengd jólum, að fólk hafi ekki átt mikið af fötum, að börn hafi einungis farið í bað einu sinni í viku og bara eitt útvarpstæki á heimilinu. Kannski óskiljanleg veröld fyrir nútímabörn að ekki hafi verið til sjónvarp eða internet. Nýjar rannsóknir á högum barna 10 til13 ára sýna að mikið er um tækjaeign hjá börnum og sumir tala um að börnin séu farin að heiman heima þar sem þau hafi allt til alls í sínu herbergi.

Í öllum hraðanum og tækniundrunum sem áttu að spara okkur tíma virðumst við tapa tíma og virðumst lifa við stanslausa minnkun á “núinu” þar sem allir reyna að græða meira á styttri tíma. Við eigum ótal klukkur en höfum engan tíma nema þann sem við seljum á útsölu til vinnuveitenda segja sumir. Þegar svo starfsfólkið kvartar undan álagi er því vinsamlega bent á að  það sé einmitt það sem það fái sérstaklega greitt fyrir. Mörg stéttarfélög leita nú eftir viðhorfum og forgangsröðun félagsmanna sinna varðandi hagsmuni þeirra. Foreldrar komið hagsmunamálum ykkar á framfæri við stéttarfélög ykkar því nú er lag og kjarasamningar lausir hjá mörgum um áramótin. http://www.heimiliogskoli.is/

Helga M.Guðmundsdóttir  – Verkefnastjóri hjá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra

 

Nýjustu fréttir

Jafnt hjá ÍBV og Fram í Lengjubikar kvenna
Tómas Bent og félagar í Hearts aftur á sigurbraut
ÍBV vann Suðurlandsslaginn
Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.