Besti fótboltamaður Íslands fyrr og síðar kostaði 5 krónur og ís

Það er orðið alþekkt í fótboltaheiminum að leikmenn gangi kaupum og sölum en elsta sagan hér af landi af slíku fjallar um mann sem margir telja besta knattspyrnumann Íslands fyrr og síðar.

Atvikið varð upp úr 1960 þegar Ásgeir Sigurvinsson var keyptur í fyrsta sinn, og kaupverðið 5 krónur og ís.

 

Ásgeir hafði hafið feril sinn sem leikmaður Þórs í Vestmannaeyjum en þegar Adólf Óskarsson íþróttafrömuður í eyjum sá til hans vissi hann að þarna var mikið efni sem hann varð að fá yfir í sitt lið, Tý.

Hófust þá samningaviðræður milli þeirra sem enduðu á því að Ásgeir samþykkti að ganga til liðs við Týr, aðeins fimm ára gamall, gegn því að fá í greiðslu fimm krónur og ís.

Ásgeir sjálfur mundi ekki eftir atvikinu þegar við höfðum samband við hann en sagðist oft hafa heyrt söguna og teldi að hún sé sönn.

Adólf Óskarsson var með Ásgeiri í yngri flokkunum hjá Týr og spurning hvort þessi gamli frjálsíþróttamaður hafi gert sér grein fyrir því að þara færi leikmanaður sem átti eftir að vera besti knattspyrnumaður í Þýskalandi 20 árum síðar. Þar í landi sló hann svo í gegn að Þjóðverjar kvörtuðu sáran yfir því að geta ekki valið hann í landslið sitt.

www.fotbolti.net

 

Nýjustu fréttir

45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.