Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglunni í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina enda nokkur fjöldi fólks að skemmta sér.  Lögreglan aðstoðaði m.a. fólk til síns heima sem átti erfitt með gang sökum ölvunarástands.

Ein líkamsárás var tilkynnt til lögreglunnar en hún átti sér stað á veitingastaðnum Prófastinum. Þarna höfðu orðið átök á milli tveggja manna sem endaði með því að annar lá sár eftir.  Ekki liggur fyrir kæra í málinu.

Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglunnar og áttu þau sér einnig stað á veitingastaðnum Prófastinum. Þarna reyndusttvær stúlkur hafa verið á ferð, sem ætluðu að komast inn á veitingastaðinn af þaki hans en við það hafi rúða brotnað.  Ekki liggur fyrir kæra í málinu.

Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni sem leið og var í báðum tilvikum um minniháttar tjón að ræða og engin slys á fólki.

Nýjustu fréttir

Samgöngur  við Eyjar settar í hættu?
Gamla myndin – Kartöflugarðar í Eyjum 
Landsbankinn og N1 bætast í hluthafahóp Eyjaganga
Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.