Margrét Lára langmarkahæst

Margrét Lára Viðarsdóttir er langmarkahæsti leikmaðurinn í Landsbankadeild kvenna. Margrét hefur skorað þrjátíu mörk í deildinni í þeim þrettán leikjum sem Valur hefur leikið en í kvöld gerði hún fjögur þegar Valur vann 11-0 útisigur á FjölniHrefna Huld Jóhannesdóttir úr KR og Nína Ósk Kristinsdóttir úr Val koma á eftir Margréti í markaskorun en þær hafa gert fjórtán mörk hvor. Nína skoraði tvö gegn Fjölni í kvöld.

Hér að neðan má sjá markahæstu leikmenn í Landsbankadeild kvenna. Í sviga fyrir aftan má sjá hve mörg af mörkunum hafa komið úr vítaspyrnum.

1 Margrét Lára Viðarsdóttir, Valur – 30 (5)
2 Hrefna Huld Jóhannesdóttir, KR – 14 (0)
3 Nína Ósk Kristinsdóttir, Valur- 14 (1)
4 Hólmfríður Magnúsdóttir, KR – 13 (0)

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.