Nokkur fjöldi Þjóðhátíðargesta var í Vestmannaeyjum í gærkveldi og var talsverð ölvun á tjaldsvæðinu í Herjólfsdal í nótt. Einn gisti fangageymslur lögreglu vegna ölvunar. Tjaldgestir gerðu sér að leik að kveikja í tjöldum í dalnum og er það að verða árviss hegðun þeirra að lokinni hátíðinni, enda margir sem hreinlega skilja allan sinn búnað eftir og hirða ekki um að taka hann með sér heim.
Þrátt fyrir stanslausa flutninga fólks með flugi og Herjólfi í gær er ekki reiknað með að síðustu gestirnir komist frá Eyjum fyrr en í kvöld.
Þegar helgin er gerð upp er ljóst að Þjóðhátíð í ár er með stærri hátíðum og gestafjöldi líklega yfir 10 þúsund. Veður var með besta móti þvert ofan í margar spár og sólin skein flesta dagana.
Frá sjónarhóli lögreglu er langt síðan jafn fá alvarleg mál hafa komið upp og er þá átt við líkamsárásir sem voru fáar, fíkniefnamál voru færri en um langt árabil og ekkert kynferðisbrot hefur verið kært til lögreglu. Þrátt fyrir þetta var talsverður erill marga dagana og hafði lögregla í mörgu að snúast vegna ölvunar gesta.
Lögreglan í Vestmannaeyjum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.