Rjóminn á Þjóðhátíðina

Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 2007 er komið út. Ágætlega hefur tekist til með efni í blaðið í ár og að vanda skreyta blaðið fjölmargar skemmtilegar myndir sem gleðja munu margan, ritstjóri hefur þó fengið nokkur símtöl útaf blaðinu og hafa nokkrir séð ástæðu til að hringja og kvarta undan því að engar myndir séu af þeim í blaðinu, það lagast vonandi að ári.

Í blaðinu er meðal annars að finna skemmtilegan Tango þar sem að þeir stiga um dansgólfið þeir Ómar Garðsson, með spurningalistann, og Árni Johnsen, sem sér um svörin. Einnig eru tvö stutt viðtöl við þá Sigurð Jónsson frá Húsavík, kenndur við húsið ekki byggðarlagið, og hinn létt ruglaði Jón Óskar Þórhallsson segir m.a. sögur af Þorsteini vini sínum Hallgríms.

Blaðið er 64 síður og fullt af skemmtilegum myndum eins og áður segir. Ritstjórn var ekki í höndum Þorsteins Hallgríms.

Gengið verður í hús í dag og blaðið selt og einnig er hægt að nálgast það í Klettinum, Tvistinum, Toppinu og Skýlinu

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.