Þó svo að þjóðhátíðin byrji ekki formlega fyrr en á föstudag þá eru þjóðhátíðargestir byrjaðir að streyma til eyja. Í dag komu tvær Fokker 50 sæta vélar frá Reykjavíkur með farþegar frá Flugfélagi Íslands, Herjólfur siglir með um 800 farþega í dag og Flugfélag Vestmannaeyja er með loftbrú milli eyja og bakka.
Hjá Hannesi Kristni Sigurðssyni hjá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að um 1000 farþegar eiga bókað til eyja frá deginum í dag og fram á sunnudag og á mánudaginn er stefnt að því að koma þeim fjölda heim á ný.
Á morgun verða fjórar vélar, tíu vélar á föstudag, tvær á laugardag og fjórar vélar á sunnudag. Örfá sæti eru laus til eyja á föstudag og sunnudag en upp pantað er frá eyjum á mánudag.
Þegar örtröðin verður sem mest hjá starfsmönnum Flugfélagsins þá má gera ráð fyrir því að fimmtán mínútur verði milli véla en að meðaltali á föstudaginn kemur vél á klukkutímafresti. Hannes Kristinn sagðist vera með einvalalið af hraustum peyjum á þessari þjóðhátíð í vinnu og væri þeir með sjö til átta starfsmenn eftir umferð flugvéla.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.