Rís bjórverksmiðja í Vestmannaeyjum í vor?

Í gangi er könnun á hagkvæmni þess að setja á stofn bjórverksmiðju í Vestmannaeyjum. Verði niðurstaðan jákvæð er stefnt að því að hefja starfsemi næsta vor og er gert ráð fyrir sex til átta störfum við verksmiðjuna, frá þessu er greint á sunnlenska fréttavefnum sudurland.is.Það er fyrirtækið 2B-Company á Selfossi sem þarna á hlut að máli en annar eigandi þess er Eyjamaðurinn Björgvin Rúnarsson. „Þetta er á frumstigi hjá okkur,” sagði Björgvin. „Við erum að skoða þennan möguleika og láta reikna út hvort hagkvæmt sé að setja upp bjórverksmiðju í Eyjum. Við erum með fjársterka aðila á bak við okkur sem ég get ekki upplýst strax hverjir eru. Okkur er full alvara og Vestmannaeyjar eru eini staðurinn sem kemur til greina hjá okkur. Þetta gæti skapað sex til átta störf og gangi allt upp byrjum við í vor og stefnum á að framleiða 1,5 milljón lítra á ári til að byrja með,” sagði Björgvin í samtali við sudurland.is.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.