Á föstudag komust lögreglumenn á snoðir um að verið væri að mála bifhjól í bílskúr á Selfossi. Grunsemdir vöknuðu um að hjólið væri stolið.
Í ljós kom að hjólinu hafði verið stolið í Reykjavík og þjófurinn fengið saklaust ungmenni á Selfossi til að geyma hjólið. Sá grunaði var handtekinn og yfirheyrður ásamt manni sem handtekinn var í Reykjaví og er talinn vera vitorðsmaður.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst