Í dag klukkan 16.45 verður Friðarganga gengin frá Landakirkju og niður á Stakkó þar sem kveikt verður á jólatré bæjarins klukkan 17.00. Jólatrénu hefur nú verið fundinn nýr staður á Stakkagerðistúninu, gegnt Akógeshúsinu. Búast má við fjölmenni enda mun Leikfélag Vestmannaeyja skemmta gestum og gangandi og jólasveinarnir gefa börnunum góðgæti.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst