Lögreglumenn gerðu húsleit í íbúð í uppsveitum Árnessýslu fyrir nokkru vegna gruns um að þar ætti sér stað framleiðsla á landa.
Um 25 lítrar af landa fundust auk bruggtækja. Engin framleiðsla var í gangi. Einn maður var handtekinn vegna málsins og viðurkenndi hann að hafa staðið einn að brugguninni sem hann ætlaði fyrir sig einan. Hald var lagt á landa og tæki.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst