Ég undirritaður gef kost á mér í 1.-4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 7. mars næst komandi. Ég er 59. ára gamall Eyjamaður, búsettur á Selfossi og starfa þar sem verkefnisstjóri. Málaflokkar mínir eru íþrótta- forvarna- tómstunda- og menningarmál hjá Sveitarfélaginu Árborg. Samfélagið hrópar á breytingar í ljósi efnahagshrunsins, m.a.kallar á breytingar á starfsemi stjórnmálaflokka, krefst gegnsærri vinnubragða – grunngildi skulu virt- frelsi, jafnrétti og bræðralag.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst