Það var góð stemmning á bryggjunni í Vestmannaeyjum í dag þegar Kap VE byrjaði að veiða síld í höfninni. Þetta er í annað sinn sem skipið reynir við síldina í höfninni en eftir fyrsta túrinn var veiðin stöðvuð. Hún var hins vegar leyfð að nýju á föstudaginn enda fyrirséð að talsverð mengun yrði af síldinni í sumar, ef hún yrði ekki hreinsuð upp. Veiðin í dag gekk vel, engar veiðitölur liggja fyrir en fróðir menn á bryggjukantinum skutu á að köstin tvö hefðu verið samtals um 500 tonn.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst