ÍBV leitar þessa stundina að framherja til að fylla skarð Gunnars Heiðars Þorvaldssonar sem gekk í raðir Norrköping í síðustu viku. Eyjamenn fara í æfingaferð til Spánar á föstudag og þeir áttu möguleika á að fá danskan framherja með sér þangað á reynslu. Ekkert verður þó af því þar sem að framherjinn þótti of dýr en þetta staðfesti Heimir Hallgrímsson þjálfari Eyjamanna í samtali við Fótbolta.net í dag.