Klukkan 14:00 í dag hófst hið árlega Diskó-grímuball Eyverja en eins og undanfarin ár var ballið haldið í Höllinni. Um 400 börn mættu í ballið í allskonar búningum. Flottasti búningurinn var strumpastelpa á strumpabíl en strumpastelpan sjálf var Clara Björt Kristjánsdóttir.