Í kvöld, klukkan 18:00 tekur ÍBV á móti HK í afar þýðingamiklum leik í N1 deild kvenna. ÍBV er í þriðja sæti fyrir leikinn, með 23 stig en HK er í fjórða sæti með 21 stig. Bæði lið hafa leikið 16 leiki en Stjarnan, sem er í fimmta sæti með 20 stig, hefur leikið 17 leiki. Sigur hjá ÍBV í kvöld gæti farið langt með að tryggja ÍBV heimaleikjarétt í úrslitkeppninni, en aðeins eru fjórar umferðir eftir af Íslandsmótinu.