Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á nýliðnum stærsta landsfundi nokkurs stjórnmálaafls í sögu lýðveldis Íslands. Í fjórgang hefur hann sótt umboð sitt flokksmanna og hvergi brugðist því trausti sem honum hefur verið falið. Hann er með óskorað umboð flokksmanna til forystu þess flokks sem að okkar mati hefur upp á að bjóða skynsamlegustu lausnir á vanda Íslendinga.