Enginn þingmaður af þeim tíu sem taka sæti á Alþingi úr Suðurkjördæmi, er búsettur í Vestmannaeyjum. Samkvæmt því sem næst verður komist er þetta aðeins í annað sinn í sögu Alþingis sem það gerist. Af tíu þingmönnum í Suðurkjördæmi, koma sjö frá Reykjanesi. Enginn þingmaður er úr austurhluta kjördæmisins og enginn frá Vestmannaeyjum. Þingmannahópurinn er því allur búsettur í vesturhluta kjördæmisins ef undan er skilin Unnur Brá Konráðsdóttir úr Rangárþingi eystra.