Ályktun samninganefndar Drífanda
Samninganefnd Drífanda stéttarfélags lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun samningaviðræðna milli atvinnurekenda og launafólks undanfarna daga. Enn eina ferðina á að skammta almennu verkafólki skammarlegar upphæðir meðan hálaunafólk fær hundruð þúsunda í mánaðarhækkanir á sín laun.
�?að alvarlega í málinu er að hugmyndir um þessar nánasarlegu hækkanir koma einar og óstuddar innan úr herbúðum verkalýðshreyfingarinnar og eru þar með að grafa undan lífsafkomu fólks. En það furðulega er að þessar tillögur innan úr verkalýðshreyfingunni tryggja forystumönnum hennar tugum og hundruðum prósenta meiri launahækkanir en ætlað er að almennir félagsmenn hennar fái.
Sannarlega er misjafnt hve mikið atvinnugreinar þola að taka á sig launahækkanir. En algjörlega er ljóst að útflutningsatvinnugreinar myndu þola tugprósenta launahækkun í ljósi tugmilljarða afkomu þeirra undanfarin ár og í ljósi afsláttar er mörg þeirra hafa fengið á auðlindagjaldi.
�?að sætir því furðu að í uppsiglingu sé framhald á einni stærstu gjöf Íslandssögunnar fyrr og síðar til fiskvinnslunnar í landinu í boði verkalýðshreyfingarinnar, í formi launaafsláttar.
�?eir sem þurfa að bera þessa gjöf til atvinnurekenda í launaumslögum sínum, er fólk á töxtum sem eru undir og rétt við lögbundin lágmarkslaun í landinu. Sama fólk og mun verða skilið eftir hvort sem skattlækkunartillögur ríkisstjórnarinnar eða ASÍ verða að veruleika.
Samninganefnd Drífanda skorar á samninganefndir SGS og ASÍ að hysja upp um sig buxurnar, koma sér út úr þægindahringnum, og sækja launin sem sannarlega er innistæða fyrir til fyrirtækjanna.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.