�?olinmæði er dyggð
�?að er að nálgast hálfur mánuður síðan við lögðum af stað í þennan túr. Höfum við á þeim tíma skilað af okkur einni nót heim til Eyja til viðgerðar og erum núna á leið til Reykjavíkur til að lappa upp á hana þessa. Sem fyrr var lítið að sjá inn á Breiðafirði af síld og vandasamt að ná til hennar þegar hún þá birtist í smá peðru formi uppí fjöru milli eyja, skerja, kræklingalínu og allskonar leiðinda. Sömu örlög hlaut hitt skipið sem ennþá var á svæðinu Ásgrímur Halldórsson, hann líkt og við kastaði einu sinni í dag og reif sína nót líka illa og er hættur og farinn austur, en þar er saman kominn flotinn að reyna fyrir sér svona þegar veður verður til þess. En þolinmæði er dyggð eða er ekki svo? þá verður okkur klárlega verðlaunað hér á Álsey fyrr en seinna;-) við ætlum galvaskir að fara í viðgerð á nótinni inni í Hampiðjunni í fyrramálið og fá aðstoð frá þeim þar. Að henni lokinni ætlum við að láta slag standa og rjúka aftur inn á fjörðinn alræmda, finna hana og veiða hana í stórum stíl, takk fyrir túkall skrúfum við upp væntingastuðullinn frá og með núna, kær kveðja frá okkur og Pollýönnu

https://www.facebook.com/alsey.ve?fref=ts

Nýjustu fréttir

Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.