Í dag, fimmtudag klukkan níu um morguninn verður frumflutt lag eftir þá Helga Tórshamar og Sævar Helga Geirsson en lagið, sem heitir Hjálp, fjallar um einelti og er flutt af hópnum Regnbogar. Birkir Thór Högnason hefur umsjón með útgáfu lagsins og myndbands sem fylgir í kjölfarið en átta ungir og efnilegir söngvarar úr Eyjum flytja lagið. Gísli Stefánsson sér alfarið um tónlist, upptökur og útsetningu á laginu.
�??Helgi Tórshamar samdi lagið og Sævar Helgi Geirsson textann. �?að var upphaflega samið til minningar um strák, 11 ára, sem framdi sjálfsvíg eftir einelti og tengdist m.a. Vestmannaeyjum,�?? sagði Birkir í samtali við Eyjafréttir um aðdragandann að útgáfu lagins. �??Síðan var þetta að brjótast um í þeim þar til eftir tónleikana um síðustu goslok, Lög unga fólksins, að Helgi stakk upp á því við mig að þessi hópur myndi flytja lagið. Síðan hefur þetta verið að gerjast hjá okkur, þar til nú að lagið er að verða að veruleika.�??
Eins og áður sagði eru söngvararnir allir frá Eyjum og eru á aldrinum þrettán til sautján ára. �?etta eru þau Birta Birgis, Sara Renee og Erna Scheving, Hjálmar Guðna, Viktoría Rún, Svanhildur Eiríks, Una �?orvalds og Helga Sóley. �?á sér Viktor Rittmüller um myndbandsvinnsluna. �??�?etta er ekki ósvipað gamla góða laginu Hjálpum þeim þar sem söngvarar skiptast á að syngja laglínurnar en fimmtudaginn 23. janúar klukkan níu um morguninn ætlum við að frumsýna myndbandið og frumflytja lagið. 6. til 10. bekk er boðið að vera við frumflutninginn, og einnig nokkrum fyrirtækjum og félögum. Stefán Karl, formaður Regnbogabarna verður með okkur og er með fyrir-
lestur en hann kemur svo með okkur í Hamarsskóla, þar sem við tölum við yngri nemendur Grunnskólans.�??
Nánar í Eyjafréttum.