Alþingismennirnir Ásmundur Friðriksson og Vilhjálmur Árnason verða gestir á laugardagsfundi Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum laugardaginn 25.janúar kl. 11.00. Rædd verða atvinnumál í víðu samhengi, samgöngumál, heilbrigðismál og fleira. Hér er gott tækifæri til þess að hitta þingmenn kjördæmisins og ræða málin á hreinskiptinn hátt.
Allir velkomnir!
Fréttatilkynning