Fulltrúi True North hafði samband við ritstjórn Eyjafrétta og óskaði eftir liðssinni. Áætlað er að taka upp auglýsingu á næstu dögum fyrir UNICEF á Íslandi og vantar eitt og annað fyrir auglýsingagerðina, m.a. tjöld. �?egar málið var skoðað þóttu þjóðhátíðartjöld heppilegust fyrir verkefnið og þá er komið að þætti Eyjamanna. Ef þú átt þjóðhátíðartjald og ert tilbúin/n að lána það til True North ertu beðin/n um að hafa samband við Sólveigu í síma 861-1592. Betra er að tjöldin séu komin svolítið til ára sinna og farin að láta dálítið á sjá. Góðri meðferð er heitið og að tjöldin skili sér í jafngóðu ásigkomulagi til baka. Greitt verður fyrir allan flutningskostnað.