Flugfélagið Ernir ekki að hætta áætlunarflugi
Ekkert er til í þeim orðrómi að Flugfélagið Ernir sé að hætta áætlunarflugi til Vestmannaeyja. �?etta staðfesti Ásgeir �?rn �?orsteinsson, sölu- og markaðsstjóri félagsins, í samtali við Eyjafréttir. Hann bætir því við að forsvarsmenn Ernis séu bjartsýnir á farþegaflug fyrir árið 2014 og að allt bendi til fjölgunar farþega.
�??Í fyrra var sætanýting fín en veðrið var að stríða okkur talsvert meira en 2012 og því var fækkun farþega, þótt sætanýtingin hefði verið góð. Við urðum nefnilega að aflýsa ferðum í meira mæli en áður og það skýrir að mestu fækkun farþega miðað við 2012,�?? sagði Ásgeir �?rn. �??�?essi fækkun er samt sem áður ekki teljandi og ef við horfum eingöngu á seinni hluta árs, þá er farþegafjöldi í samræmi við árið á undan.�??
Hvað með þann orðróm að félagið sé að hætta áætlunarflugi til Eyja?
�??�?g heyrði sjálfur af þessu í síðustu viku og þessi orðrómur á ekki við nein rök að styðjast. �?að er ekkert í farvatninu að Ernir sé að hætta áætlunarflugi til Vestmannaeyja. Farþegastreymi er að aukast og bókunarstaðan fyrir 2014 hefur aldrei verið betri. Við horfum bjartsýn fram á veginn og ég tel að við eigum eftir að sjá fjölgun farþega, svo lengi sem veðrið verði ekki eins óhagstætt og í fyrra.�??
Getur verið að orðrómurinn hafi farið af stað þegar félagið hætti áætlunarflugi á laugardögum?
�??�?að má vel vera. Við hættum áætlunarflugi á laugardögum fyrir rúmum mánuði, aðallega vegna þess að sætanýtingin í þeim ferðum var í kringum 20%, sem er mjög lítið. �?arna er ég auðvitað að tala um þau flug þar sem íþróttahópar voru ekki með í ferðinni. Hins vegar hefur reyndin verið sú að við fljúgum nánast á hverjum laugardegi til Vestmannaeyja. Íþróttahóparnir hafa nýtt flugið á laugardögum og við erum alveg ófeimnir við að setja upp aukaflug ef mikið er um að vera. Við reynum að þjónusta Eyjamenn eins vel og mögulegt er en sú ákvörðun að hætta með áætlunarflug á laugardögum var eingöngu hagræðing í okkar rekstri. En ég hvet fólk til að fylgjast með á okkar heimasíðu eða facebooksíðu Ernis með flug á laugardögum. Við sendum líka tilkynningar, bæði á Eyjafréttir og Eyjar.net ef við erum með aukaflug á laugardögum, sem á öðrum dögum.�??
Greinin birtist í heild sinni í Eyjafréttum

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.