Alþingi samþykkti, að frumkvæði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, að verja 500 milljónum til eflingar löggæslu á landsbyggðinni. Innanríkisráðherra fól undirrituðum þá ábyrgð að fara fyrir nefndinni ásamt fulltrúum allra flokka á Alþingi. Nefndin skilaði til ráðherra tillögum sínum í síðustu viku.
Verkefni nefndarinnar var að koma með tillögur að því hvernig fjármagni þessu yrði best varið. Líkt og allir vita er fjármagn af skornum skammti. �?ví var ljóst frá upphafi að ekki yrði hægt að verða við öllum óskum með 500 millj-ónum, sem eru engu að síður tals- verðir fjármunir. �?ví þurfti að forgangsraða og var lögð áhersla á að auka viðbragðsgetu, sýnileika og eftirlit lögreglu á landsbyggðinni.
�?essum markmiðum verður náð með fjölgun lögreglumanna- og kvenna, auknum akstri ökutækja lögreglu á þjóðvegum landsins, aukinni þjálfun og menntun, auknum búnaði og að endingu bættum mannauðsmálum. �?á verða rannsóknardeildirnar enn fremur efldar.
Á Suðurlandi mun lögreglumönnum fjölga um níu; fjóra á Selfossi; þrjá í Vestmannaeyjum og tvo í Vík í Mýrdal. Búið er að tryggja lögregluvarðstofuna í Vík og mögulegt verður fyrir þá sem þar starfa að sinna hálendiseftirliti. �?etta kemur löggæslumálum svæðisins í mun betra horf en áður var.
�?ryggis- og þjónustustig lögreglunnar mun aukast þegar tillögurnar komast til framkvæmda, en innanríkisráðherra hefur nú þegar samþykkt þær. Tillögurnar miða að því að lögregluembættin geti strax hafist handa við að aug- lýsa lausar stöður svo að ráðningar geti hafist frá og með 1. mars. �?á mun öryggi lögreglumanna aukast og starfsaðstæður verða bættar.
�?að er jákvætt og ekki síður mikilvægt eftir tíma niðurskurðar og aðhalds að geta snúið vörn í sókn og eflt lögregluna til muna. �?etta er aðeins fyrsta framfaraskrefið af mörgum en verkefninu er alls ekki lokið og mun ég leggja mitt af mörkum til að svo megi verða!
Góðar stundir.