Hækkun leikskólagjalda ekki 14,6 prósent heldur 9,5 prósent
Í gær birtist frétt í Eyjafréttum um hækkun leikskólagjalda hjá Vestmannaeyjabæ. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að upplýsingar í fréttinni sem fengnar eru úr samanburðaskjali frá Alþýðusambandi Íslands, séu rangar. Hækkunin sé 9.5% en ekki 14.6%.
�??ASÍ hefur gefið það út að hækkun á leikskólagjöldum hjá Vestmannaeyjabæ sé 14,6% vegna 8 tíma vistunar. �?etta eru rangir útreikningar hjá ASÍ. Meðfylgjandi er skjalið þar sem þeir finna út þessa hækkun, allar forsendur eru réttar en samt er reiknað vitlaust. �?ar er sagt að gjald fyrir 8 tíma vistun hækki á milli ára úr 29.829 krónum í 34.189 krónur sem gerir 14,6% hækkun. �?etta er rangt, gjaldið 1. janúar var ekki 29.829 og ég skil ekki hvernig ASÍ fékk það út, ASÍ er með allar forsendur til að reikna gjaldið rétt út, enda reikna þeir það rétt fyrir 1. janúar 2014.
�?treikningurinn er eftirfarandi:
Vegna 1. janúar 2014:
Tímagjald: 3.122 kr. x 8 klst. = 24.976 kr.
Fæði: (hádegism.+morgunm.+síðdegish.) 5537+1838+1838 = 9.213 kr.
Samtals kostnaður vegna 8 tíma vistunar: 34.189 kr. => �?etta er rétt hjá ASÍ
Vegna 1 janúar 2013:
Tímagjald: 2.953 x 8 klst. = 23.624 kr.
Fæði: 4.065 + 1.762 + 1.762 = 7.589 kr.
Samtals kostnaður vegna 8 tíma vistunar: 31.213 kr. => �?etta var gert rangt hjá ASÍ
Gjaldið 1 janúar 2013 var því 31.2103 kr. en ekki 29.829 kr. eins og ASÍ heldur fram. Gjaldið á milli ára vegna 8 tíma vistunar hækkar því úr krónum 31.213 í krónur 34.189, sem gerir 9,53%.
Sama vitleysan er gerð í útreikningi hjá forgangshópi, þar er sagt að hækkunin sé 17% á milli ára þegar að hún er 10,7%.
�?á er rétta að benda á að Jórunn Einarsdóttir samþykkti hækkunina bæði í bæjarráðiog í bæjarstjórn, þótt lesa megi annað útúr viðtali við hana í Eyjafréttum.
Frá ritstjórn: ASÍ hefur nú breytt skjali sínu og leiðrétt það sem rangt var þar sagt og breytt hækkuninni úr 14,6% í 9.5%, sem gerir frétt Eyjafrétta ranga.

Nýjustu fréttir

MAST, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs sameinuð
Það þarf meira en hús til að reka skóla
Grjótleit komin á fullt á Haugasvæðinu
Vigga og Guðni hafa heimsótt 86 lönd og eru hvergi nærri hætt
Sólhlíð, Áshamar og Stakkagerðistún
Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.