Víkingur siglir til Landeyjahafnar í dag kl. 17.30
Stefnt er að því að farþegabáturinn Víkingur sigli til Landeyjahafnar í dag kl. 17.30. �?lduhæð er á niðurleið og gott útlit fyrir siglingu bátsins. Brottför frá Landeyjahöfn verður kl. 19.00.
Farþegar bóka far í ferðir Vikings með sama hætti og í ferðir Herjólfs og geta nýtt sér afsláttarkort. Sama gjaldskrá er í ferðir Vikings og er fyrir Herjólfs vegna ferða til Landeyjahafnar.
Vikingur tekur 63 farþega en ekki bifreiðar.
Í ljósi fyrirliggjandi ölduspáar ætti Vikingur einnig að geta siglt til Landeyjahafnar á morgun mánudag en eftir það á ölduhæð að hækka aftur, nánar um það síðar.
Siglingar Vikings er tilraunaverkefni með það að markmiði að auka þjónustu við þá farþega sem vilja ferðast milli lands og Eyja.
Viðmiðunarmörk Vikings VE-2777 hvað ölduhæð varðar er 2,4m en mikilvægt að hafa í huga að aðrir þættir geta verið takmarkandi hvað möguleika til siglinga varðar s.s. öldulengd, hafstraumar, brot við hafnargarðanna, vindur og loks dýpi.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.