�?að fer væntanlega framhjá mörgum landsmönnum að í miðju verkfalli framhaldsskólakennara stendur enn yfir verkfall undirmanna á farþegaferjunni Herjólfi sem sinnir hlutverki þjóðvegar við Vestmannaeyjar. Ekkert hefur miðað í samningaviðræðum Samtaka atvinnulífsins og Sjómannafélags Íslands og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Á meðan reyna Vestmannaeyingar að sýna undirmönnum á Herjólfi skilning í kjarabaráttu sinni þó erfiðlega gangi þegar að á þriðju viku yfirvinnubanns hefur staðið við ferjuna.
Áratugi aftur í tímann
�?að þýðir að einungis er siglt eina ferð á dag til �?orlákshafnar og þurfum við að fara áratugi aftur í tímann til að finna sambærilega þjónustu (ef 4 ferðir á viku megi kalla þjónustu) á þessum þjóðvegi okkar. Ef við setjum málin í samhengi þá skulum við átta okkur á því að Landeyjahöfn er ávalt fyrsti kostur í samgöngum, en á meðan að höfnin er ekki nothæf yfir vetrarmánuðina þá er siglt til �?orlákshafnar, ekki einungis með því óhagræði sem því fylgir að vera tæpa 3 klukkutíma í oft óblíðum sjó þá þurfa notendur þjónustunnar um þjóðveginn sem liggur til Vestmannaeyja að borga mun hærra gjald en ef ferjan færi til Landeyjahafnar.
Flugsamgöngur ekki niðurgreiddar
Í þeim aðstæðum sem uppi eru í dag að ferjan fer ekki seinnipartinn, ekki um helgar og nú næstkomandi föstudag mun ferjan ekki sigla þýðir það að þeir sem nauðsynlega þurfa að ferðast milli lands og Eyja á þeim tíma að þá er eini samgöngumátinn flug, sem ríkið hefur illu heilli hætt að niðurgreiða. �?að skal samt taka hér sérstaklega fram að flugfélagið Ernir hefur sýnt frábæra þjónustulund og mikinn vilja til að aðstoða samfélagið í þessum erfiðu aðstæðum. Flugfargjald fyrir einn fullorðinn einstakling fram og til baka frá Vestmannaeyjum kostar 28.200 og þá er ljóst að maður hefur ekki eigin bíl til umráða og er kostnaður við bílaleigubíl umtalsverður og er því augljóst að þetta er ekki álitlegur kostur fyrir sauðsvartan almúgann.
Hvalfjarðargöngin lokuð
Aðstæðurnar eru ekki ólíkar því að fyrir það fyrsta að vegna slælegra vinnubragða við frágang Hvalfjarðarganga í upphafi væri ekki hægt að keyra göngin á vetrarmánuðum sökum of mikils útblásturs og umferð væri því beint um Hvalfjörðinn en gangnaeftirlitsmenn störfuðu samt sem áður í Hvalfirðinum við að rukka margfalt á við það sem kostaði að keyra göngin. Svo færu gangnaeftirlitsmenn við Hvalfjörð í verkfall og ákveða að loka Hvalfjarðarveginum frá kl. 17 virka daga og alveg yfir helgar (frá föstudegi til sunnudags) og eina leiðin yfir fjörðinn væri með flugsamgöngum. Svo myndi einhverri frábærri skriffinnskublók detta í hug að loka fyrir innanlandsflug á laugardögum á þessari leið.
Ekki sama þjóðvegur og þjóðvegur eitt
�?g hef það á tilfinningunni að sú kjaradeila sem lýst er hér að ofan yrði leyst hraðar en sú sem við stöndum frammi fyrir í dag, þar sem ég er minnug þeirra skjótu viðbragða sem Vegagerðin greip til þegar hlaupið í Múlakvísl olli rofi á þjóðvegi eitt. �?essi kjaradeila hefur fengið að ganga óáreitt allt of lengi með slæmum afleiðingum fyrir atvinnulíf í Vestmannaeyjum og skerðingu á almennum lífsgæðum Vestmannaeyinga. �?g ákalla ráðamenn þjóðarinnar til að grípa til aðgerða, sætta þessa deilu sem allra allra fyrst, hysja upp um sig buxurnar og koma samgöngumálum við Vestmannaeyjar í mannsæmandi horf.