Íslandsbanki býður upp á námskeið í Meniga á fimmtudaginn klukkan 17:00 í Akóges. Meniga er heimilisbókhald Íslandsbanka og í tilkynningu frá bankanum kemur fram að allir séu velkomnir á námskeiðið. �??Heimilisbókhald Íslandsbanka, Meniga, hjálpar þér að ná góðri yfirsýn yfir fjármálin. Íslandsbanki býður viðskiptavinum sínum, sem og öðrum bæjarbúum upp á ókeypis námskeið í Meniga og hafa viðskiptavinir sótt þau í hundraðavís undanfarin misseri,�?? segir í tilkynningunni. �?eir viðskiptavinir sem eiga fartölvu eru hvattir til að koma með þær á námskeiðið.