Kvefið hjá Fidel Castro og Herjólfur
�?egar fréttir berast af því yfir heimsbyggðina að Fidel Castro, Kúbuleiðtoginn gamli sé með kvef, kenna örfáir í brjósti um karlinn en það gleymist fljótt. �?annig er það með verkfallið á Herjólfi, fréttir eru sagðar af því og margir kenna í brjósti um íbúana í Eyjum sem líða fyrir verkfallið, en það líður fljótt hjá og gleymist eins og kvefið hjá Castro. Vestmannaeyingar sitja nú í þeirri ótrúlegu súpu að öll stjórnsýsla með skipið fer fram á fastalandinu. Vegagerðin ber ábyrgð að skipinu fyrir hönd ríkisins en Eimskip, öllu heldur Flytjandi sér um útgerðina. Og þegar kemur að kjarasamningum við áhöfnina sem skipuð er Eyjamönnum koma þar að aðilar og samtök með aðsetur í Reykjavík. Allt er þetta ágætis og vel meinandi fólk en hagsmunir þess og hugsunarháttur fer ekki endilega saman við hagsmuni íbúa og atvinnulífs í Eyjum. �?eir finna ekki taktinn í samfélaginu og púlsinn hjá þeim hreyfist ekki þó að Fiskmarkaður Vestmannaeyja verði óstarfhæfur og atvinnulífið í Eyjum tapi milljónatekjum á dag. Ekki frekar en að móðir og fjölskylda sé í angist vegna þess að fæðingarhjálpin er í Reykjavík eða að 3. flokkur ÍBV komist ekki í leik í höfuðborginni um helgi, er það ekki að hafa bein áhrif á stemninguna í kaffistofunni hjá Vegagerðinni, Flytjanda, Samtökum atvinnulífsins eða hjá Sjómannafélagi Reykjavíkur. Ekki frekar en kvefið hjá Castro. En það hefur áhrif á hvern einasta íbúa í Vestmannaeyjum hverja mínútu, klukkustund, alla daga, vikur, mánuði og ár.
Í Vestmannaeyjum er hvert mannsbarn háð samgöngum við fastalandið og þær eru forsenda byggðarinnar og atvinnulífsins í Eyjum. Samfélags þar sem hvert mannsbarn er stolt af því skilar meira í sameiginlegan sjóð þjóðarinnar en aðrir landsmenn. �?eim finnst því ekki úr vegi að alþingismenn og ráðamenn stoppi aðeins á göngunni, líti til Eyja og athugi hvort þeir geti eitthvað gert til að afstýra því ástandi sem komið er upp og fer dagversnandi. Við þingmenn höfum ekki mörg vopn til að beita í þessari baráttu önnur en þau að leggja gott til málanna og biðja um gott veður. �?að eru engin völd í okkar höndum önnur en löggjafarvaldið og sú leið er nauðvörn í málinu. En hvenær kemur að því að nauðvörn skapist? Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja getur ekki ábyrgst fullt öryggi nema samgöngur séu í lagi og í jafn sjálfsögðum tilfellum og fæðing barns þarf móðir að leita á fastalandið til að fæða ef nokkur möguleiki er á hættu. Samgöngur eru því nauðsynlegt öryggistæki og vandmeðfarið vopn í kjaradeilu.
�?að gilda önnur lögmál og reglur um eyjasamfélög og í mínum huga er það afar mikilvægt að útgerð Herjólfs séu í höndum heimamanna. Lengst af var Herjólfur rekinn af stjórn félagsins í Eyjum og samningar gerðir á ábyrgð heimamanna. �?á kastaðist líka í kekki og verkföll fóru úr böndum og lög voru sett, en þá voru kröfurnar líka aðrar. �?að er magnað hvað samfélagið og kröfurnar hafa breyst. Atvinnulífið eins og fiskmarkaðir, framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði og fólkið þarf á daglegum og öruggum samgöngum að halda. Á síðustu 20 árum hefur áætlun skipsins tvöfaldast og reyndar margfaldast þá mánuði sem fært er í Landeyjarhöfn og það margfeldi sést í fjölda farþega og vöruflutningum skipsins. Mikilvægið er hrópandi.
Eyjamenn eru margir þeirrar skoðunar að röskun á samgönum við Eyjar veki ekki meiri athygli okkar ráðamanna en kvefið í Castro. �?að hefur allavega engin reseft verið gefin við kverkaskítnum og á meðan ekki er skilningur á sérstöðu Eyjamanna í samgöngumálum sitja samninganefndir á strjálum fundum þar sem engin tengsl eru við lífið í Eyjum. �?ar eru settar fram óraunhæfar kröfur við annan enda borðsins og við hinn endann hafa menn nógan tíma til að bíða. �?ann tíma eiga Eyjamenn ekki og þeir eru komnir í nauðvörn, eins og ég.
Ásmundur Friðriksson alþingismaður.

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.