Samgöngur milli lands og Eyja ekki munaðarvara
Bæjarráð Vestmannaeyja lýsir þungum áhyggjum af stöðu mála hvað varðar verkfall undirmanna á Herjólfi og hvetur enn og aftur samningsaðila til að setjast niður með sátt í huga og standa ekki upp frá borði fyrr en búið er að ná fram samkomulagi um þann ágreining sem er í kjaradeilunni. �?etta kemur fram í ályktun bæjarráðs sem samþykkt var á fundi nú í hádeginu.
�??Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess fyrir Vestmannaeyinga að þessari deilu ljúki sem fyrst enda skipið helsta samgöngutæki Eyjanna og hefur það nú verið úr hefðbundnum rekstri í 14 daga og ekki er útlit fyrir að lausn finnist í deilunni. Frá því að verkfall undirmanna á Herjólfi hófst 5. mars hefur skipið einungis siglt eina ferð á virkum dögum með nauðsynjavörur og ekkert um helgar. Nú hefur verið boðuð aukin harka í deilunni og mun skipið því ekkert sigla á föstudögum hér eftir fyrr en deilan verður leyst. Eins og gefur að skilja hefur verkfallið áhrif á allt mann- og viðskiptalíf í Vestmannaeyjum. Fiski er síður landað hér enda nánast vonlaust að koma afurðum á markað, ferðaþjónusta er stopp, framleiðsla fyrirtækja á ferskvörumarkaði stendur tæpt, íþróttalið verða fyrir miklum kostnaði og verða jafnvel að draga lið sín úr keppni, almennir bæjarbúar líða hvern dag. Ljóst er að verkfallið hefur þegar haft áhrif á atvinnuöryggi og ferðafrelsi Eyjamanna almennt.


Á Herjólfi eru sex stöður undirmanna. Sáttatilraunir, bæði hjá ríkissáttasemjara og milli deiluaðila sjálfra, hafa verið árangurslausar og því miður er lausn deilunnar ekki í sjónmáli.
Samgöngur milli lands og Eyja eru ekki munaðarvara heldur sjálfsögð grunnþjónusta þessa næst stærsta byggðakjarna utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar. Ítrekað er að bæjarráð tekur ekki efnislega afstöðu í deilunni en bendir á að rekstur Herjólfs er á ábyrgð ríkisins. Ríkisstjórn og Alþingi getur því ekki leyft sér að skila auðu þegar ástandið er eins og það er nú. Bæjarráð krefst þess að samgönguyfirvöld og eftir atvikum Alþingi tryggi að samgöngum við Vestmannaeyjar verði sem fyrst komið í eðlilegt horf.�??

Nýjustu fréttir

Baldur verður áfram í Eyjum
Eyjakonur í undanúrslit eftir framlengdan leik gegn FH
Hátíðarhöld 17. júní færð inn í Íþróttamiðstöðina
Sjómannsfjölskyldan mín
Topplið FH mætir ÍBV í bikarslag á Hásteinsvelli
Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.