�?g vil byrja á því að óska Matt Garner til hamingju með daginn en hann er einmitt þrítugur í dag, ótrúlegt því hann lítur út fyrir að vera miklu eldri. Gærdagurinn byrjaði á léttri morgunæfingu þar sem farið var yfir föst leikatriði fyrir leik dagsins. Síðan héldu flestir sig inni frá þeirri gulu fram að leik til að hafa sem mesta orku í leikinn. Við spiluðum við Ciudad de Murcia og unnum 3-0 og held ég að óhætt sé að segja að við hefðum getað unnið stærra. Allir fengu að spila allavega 45 mín. nema Yngvi sem skipti um stöðu við fyrirliðann í hálfleik og tók að sjálfsögðu við bandinu í leiðinni en Adam var ekki lengi í paradís (bara rétt rúmar 90 sek) því hann fór meiddur af velli eftir fólskulega árás leikmanns Murcia. Hann lætur þetta samt ekki stoppa sig og segist ætla að æfa á morgun þótt hann haltri núna í augnablikinu. En kannski vakti það meiri athygli þegar Guðjón Orri tók sig til og hljóp um 50 metra til Yngva hrifsaði af honum fyrirliðabandið án þess að athuga hvernig sinn besti vinur hefði það og hefur mikill stirðleiki verið í þeirra sambandi eftir þetta atvik. Svo spilaði Gaui með bandið í KR-under armorinum og landsliðnærbuxunum sem hann hefur ekki farið úr alla ferðina. Eftir leik fylgdust menn með Meistaradeild Evrópu og var mikil gleði meðal Chelsea manna þegar Ba kom sá og sigraði PSG. Í dag er frí frá æfingum enda mikil keyrsla búin að vera að undanförnu og annar leikur strax á laugardaginn þegar við komum heim. Kærkomið frí og efast ég ekki um að flestir láti sjá sig á sundlaugarbakkanum enda er sú gula strax farinn að skína hérna í morgunsárið.
�?g læt hér fylgja mynd af byrjunarliðinu frá því í gær. Voða eru menn eitthvað einbeittir á þessarri mynd.