Leikskólabörn á Sóla sendu Eyjafréttum eftirfarandi skilaboð til bæjarbúa eftir gönguferð hóps upp á hraun í gærmorgun:
�?tikennsla er stór hluti af námi barna í leikskólanum Sóla. Leikskólinn er mjög vel staðsettur með nýjahraunið í bakgarðinum, þangað er því töluvert farið í umhverfiskennslu. Í gærmorgun fóru tveir vinahópar í kjarkgöngu upp á hraun en þegar þau komu til baka var þeim mikið niðri fyrir því þau komu að nokkrum trjám sem búið var að brjóta og rífa upp úr moldinni. Börnin á Sóla vilja koma því á framfæri við bæjarbúa að ganga vel um náttúruna okkar og virða hana. Kærleikskveðja af Sóla.