Litlar skemmdir í Eyjum í rokinu
Nokkuð hvassviðri hefur gengið yfir Eyjarnar í dag en meðalvindhraði nú, klukkan 14:00 var 23 m/sekúndu á Stórhöfða en fór upp í 33 metra í mestu hviðunum. Eitthvað hefur verið um að lausir munir hafi fokið, m.a. trampólín og annað slíkt. �?á lét stórt veislutjald á Skipasandi undan í rokinu en brugðist var með því að leggja gámavögnum allt í kringum tjaldið til að verja það. Goslokahátíðin er í fullum gangi í Eyjum þessa stundina og nóg um að vera en kylfingar létu vindinn ekki hafa áhrif á sig og léku golf í dag í Volcano Open golfmótinu.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.