Guðjón með þrennu
KFS vann Augnablik í dag 4:0 á Hásteinsvelli. Leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður en talsverður vindur hefur verið í Eyjum í dag. Engu að síður sáust á köflum ágætis tilþrif en þó fyrst og fremst hjá bláklæddum Eyjamönnum. Guðjón �?lafsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum en Gauti �?orvarðarson skoraði eitt. Staðan í hálfleik var 1:0 en Eyjamenn nýttu sér það vel að spila undan vindi í síðari hálfleik. �?etta var jafnframt sjötti sigur KFS í sjö leikjum en liðið gerði jafntefli á útivelli í síðustu umferð gegn Vængjum Júpíters. KFS er sem fyrr í efsta sæti, nú með 19 stig eða fimm stigum meira en Vængir Júpíters og sex stigum meira en KB og Augnablik. Eyjamenn stefna því hraðbyri á úrslitakeppnina í haust en keppni í B-riðli er nú hálfnuð. Tvö efstu liðin komast í úrslitin.
�?ess má geta að Eyjamaðurinn Sigurvin �?lafsson lék sinn fyrsta leik með KFS í dag, við hlið bróður síns og markaskorarans Guðjóns.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.