Ufsaberg rennur inn í VSV
Ufsaberg-útgerð ehf. sameinast Vinnslustöðinni hf (VSV) í nafni síðarnefnda félagsins en samruinn var samþykktur á hluthafafundi VSV í gær, miðvikudag. �??Vinnslustöðin keypti 35% hlut í Ufsabergi-útgerð á árinu 2008 og snemma árs 2011 var samið um að félagið keypti tæplega 29% til viðbótar. Samruninn var samþykktur á hluthafafundi VSV í september 2011 gegn atkvæðum eigenda þriðjungshlutar í félaginu, bræðranna Hjálmars og Guðmundar Kristjánssonar og félaga á þeirra vegum. �?essir sömu hluthafar fóru með málið fyrir dómstóla og í mars 2013 ógilti Hæstiréttur Íslands niðurstöðu hluthafafundarins frá 2011 og sjálfan samruna félaganna tveggja þar með,�?? segir í frétt á vef VSV.
Ný samrunaáætlun var samþykkt í stjórnum beggja fyrirtækja í júní 2014 en eigendur Ufsabergs eignast við þetta tæplega 4% hlut í Vinnslustöðinni. �??Minnihluti eigendahópsins, bræðurnir Hjálmar og Guðmundur og félög á þeirra vegum, greiddi á ný atkvæði gegn samrunanum og lögmaður þeirra kvað minnihlutann áskilja sér rétt til að krefjast ógildingar niðurstöðu hluthafafundarins fyrir dómstólum,�?? segir í fréttinni á VSV.is. �?ar kemur jafnframt fram að samþykkt hafi verið tillaga frá minnihluta eigendahóps VSV um að stefna skyldi öðrum hluthöfum VSV í nafni Vinnslustöðvarinnar sjálfrar, bæði einstaklingum og félögum, og krefjast skaðabóta vegna meints tjóns sem þeir hefðu orðið fyrir í tengslum við sameiningu VSV og Ufsaberg-útgerð annars vegar og við kaup á fyrirtækinu Eyjaís hins vegar. �??Lögum samkvæmt máttu eigendur meirihluta hlutafjár í VSV ekki taka þátt í atkvæðagreiðslunni vegna þess að dagskrármálið beindist að þeim sjálfum.�??

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.