Eyjamenn mörðu nýliðana
�?að var ekki margt sem benti til þess að Íslandsmeistarar ÍBV væru að fara vinna Stjörnuna úr Garðabæ, sem eru nýliðar í Olísdeild karla í handbolta því eftir 10 mínútur var staðan 3:8 fyrir gestina og ekkert virtist ganga upp hjá ÍBV. En þá tók Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV hlé, sem varð til þess að ÍBV skoraði átta mörk gegn aðeins tveimur mörkum Garðbæinga og staðan tíu mínútum síðar var orðin 11:10 fyrir ÍBV. Eftir það skiptust liðin á að skora en Stjarnan var yfir í hálfleik 13:14. Eyjamenn voru svo lengst af skrefi á undan í síðari hálfleik en nýliðarnir neituðu að gefa eftir og komust yfir 27:28 þegar um tvær mínútur voru eftir. En Eyjamenn voru skynsamir á lokakaflanum, Theodór Sigurbjörnsson jafnaði metin, Henrik Eidsvaag varði og Agnar Smári Jónsson skoraði svo sigurmark ÍBV þegar sókn Eyjaliðsins var að renna út í sandinn. Garðbæingar fengu eina sókn í viðbót en vörnin hélt. Síðasta skot Garðbæinga var úr aukakasti þegar leiktíminn var úti en varnarmúr ÍBV varði skot Garðbæinga.
�?að var skelfilegt að fylgjast með Eyjaliðinu fyrstu tíu mínúturnar. Vörnin var sem gatasigti enda skoruðu Garðbæingar 8 mörk á fyrstu 10 mínútunum og sóknarleikurinn lítið skárri. En Henrik Eidsvaag stóð svo sannarlega fyrir sínu í dag en norski markvörðurinn varði 16 skot, þar af eitt víti og Kolbeinn Arnarson varði 3. Samtals 19 skot varin, sem er ekki svo slæmt, sérstaklega þegar litið er til þess að samanlagt vörðu þeir félagar 7 skot í sigurleiknum gegn Akureyri á dögunum. En þrátt fyrir að markvarslan hafi verið í lagi hjá ÍBV í dag, þá náðu Eyjamenn sér ekki nægilega vel á strik. Agnar Smári og Guðni Ingvarsson ganga greinilega ekki heilir til skógar en láta sig hafa það. Svavar Kári Grétarsson og Hákon Daði Styrmisson héldu sæti sínu í byrjunarliðinu, sem var flott enda spiluðu þeir vel gegn Akureyringum. En eftir slaka byrjun ÍBV, sem ekki var þeim að kenna, var reynslumeiri leikmönnum skipt inn á og þá fann ÍBV taktinn á ný. �?að jákvæða við sigurinn í kvöld að nú hefur ÍBV unnið tvo leiki í röð og gæti bætt þeim þriðja við á mánudaginn en klukkan 17:00 taka Íslandsmeistararnir á móti HK.
Mörk ÍBV: Einar Sverrisson 7, Theodór Sigurbjörnsson 6, Andri Heimir Friðriksson 5, Agnar Smári Jónsson 3, Grétar �?ór Eyþórsson 3, Dagur Arnarsson 2, Magnús Stefánsson 1, Hákon Daði Styrmisson 1, Svavar Kári Grétarsson 1.
Varin skot: Henrik Eidsvaag 16/1, Kolbeinn Arnarson 3.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.